Jólatónleikar 16.Desember

08.12.2010

 Fimmtudaginn 16. desember heldur kórinn jólatónleika í Ytri-Njarðvíkurkirkju. Æfingar standa yfir þessa dagana, lögin að þessu sinni ættu að koma hverju mannsbarni vel í jólaskapið Fylgist með, nánari upplýsingar koma fljótlega... Lesa fréttina

Hlusta á tóndæmi af disknum "Þú lýgur því"

23.12.2008

Kórinn leitar eftir áhugasömum tónskáldum

Karlakór Keflavíkur hlýtur styrk frá SSS til að láta semja nýja íslenska tónlist fyrir karlakóra. Kórinn leitar eftir áhugasömum tónskáldum í verkið.

Karlakór Keflavíkur sækist eftir að fá tónskáld af ungu kynslóðinni til að semja nýja íslenska tónlist fyrir karlakór.
Karlakórar líða í dag fyrir töluvert staðnaða efnisskrá og lítið hefur verið skrifað fyrir karlakóra á síðustu árum og það sem skrifað hefur verið hefur í fæstum tilvikum náð fótfestu í efnisvali kóranna. Það er synd á meðan að ung tónskáld skrifa af kostgæfni fyrir blandaða kóra, hljómsveitir og kammertónlist.
Líklegt er að ung tónskáld læri mun meira í sínu klassíska námi að meðhöndla blandaða kóra en samkynja raddir og það bitni töluvert á úrvali verka fyrir þennan markhóp. Það er reynsla kórsins að ný verk fyrir karlakóra séu ekki af sömu gæðum og verk skrifuð fyrir blandaða kóra og það gæti verið ástæða þess að þau nái ekki fótfestu.
Ætlun kórsins er að fá tónskáld til að skrifa að beiðni karlakórsins tónlist við hæfi og getu kórsins. Verk í nútímalegum búningi, við góð ljóð eða prósa íslenskra rithöfunda.
Gæta verður þess að verkin verði það aðgengileg kórmönnum í söng og flutningi að búast megi við öruggum og góðum flutningi og gefandi áheyrendum. Það væri eitt af markmiðunum með skrifunum að skrifa tónlist sem væri eftirsótt af karlakórum til flutnings og bryti upp íhaldsama tónleikaskrár kóranna.
Um er að ræða flokk 6-8 laga og er hugmyndin að helmingur þeirra væri fyrir kór án undirleiks og helmingur fyrir litla kammersveit, 4-8 manna hljómsveit eða jafnvel raftónlist, t.d. leikna af tölvum.
Lengd verkanna til viðmiðunnar væru 2-6 mínútur og heildarlengd 8. laga væri u.þ.b. 30 til 40 mínútur.
Gjarnan mætti hugsa til þess að verkin væru þematengd og mynduðu flokk þó að þau gætu einnig staðið sjálfstætt.

Til baka