23.12.2008
Karlakór Keflavíkur tók þátt í styrktartónleikum fyrir safnaðarheimili Keflavíkurkirkju sunnudagskvöldið 14 desember. Karlakórinn söng einn 3 lög, við undirleik Arnórs Vilbergssonar og Sigurðar Flosasonar en söng svo með Kirkjukór Keflavíkurkirkju og Kvennakór Suðurnesja nokkur lög, þ.á.m. lagið “Kom engill til mín“ eftir Sigurð Flosason við texta Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar. Einnig sungu kórarnir saman lagið “Ó, helga nótt” með Jóhanni Smára Sævarssyni. Yfir 300 manns mættu á tónleikana sem þóttu takast vel í alla staði. Nánari umfjöllun um tónleikana má sjá á vef Víkurfrétta, www.vf.is.
Til baka